Almennar fréttir
Héldu tombólu á Akureyri til styrktar Rauða krossinum
12. maí 2022
Þessar ungu stúlkur héldu tombólu við Nettó á Akureyri til styrktar Úkraínu og afhentu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn 6.778 krónur.
Við þökkum þeim kærlega fyrir framlag sitt í þágu mannúðar.
Yrja Mey Marinósdóttir og Hólmfríður María Ottósdóttir. Ásamt þeim tók Friðbjörg Sigríður Finnsdóttir einnig þátt í tombólunni en hún er ekki á myndinni.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Rauði krossinn fjölgar fatakössum á höfuðborgarsvæðinu
Almennar fréttir 18. nóvember 2025Nýjum söfnunarkössum Rauða krossins fyrir fatnað og annan textíl hefur verið komið fyrir við fimm Bónusverslanir á höfuðborgarsvæðinu. Samtals eru kassarnir því á sjö stöðum á svæðinu og stefnt er á frekari útbreiðslu á næstu misserum.
Samstaða sómalskra kvenna drifkraftur umbóta
Alþjóðastarf 06. nóvember 2025„Þrátt fyrir takmörkuð úrræði deila sómalskar konur þeirri öflugu hugsjón að konur séu konum bestar,“ segir Natalia Herrera Eslava, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi. Starf sómalska Rauða hálfmánans, sem Rauði krossinn á Íslandi styrkir, er mikilvægara nú en nokkru sinni.
Auglýsing um sögu Rauða krossins tilnefnd til verðlauna
Almennar fréttir 05. nóvember 2025„Saga Rauða krossins á Íslandi er löng og litrík og við lögðum mikla vinnu í að fanga rétta tilfinningu,“ segir hönnunarstjóri Strik Studio um tilnefningu til verðlauna á einni stærstu hönnunarhátíð Evrópu.