Almennar fréttir
Tímasetningar aðalfunda deilda 2025
07. febrúar 2025
Hér má sjá tímasetningar á þeim aðalfundum deilda Rauða krossins sem hafa verið ákveðnir. Fréttin verður uppfærð.
Deild |
Dagsetning og tími |
Staðsetning |
| Árnessýsludeild | 27. feb | Húsnæði deildar. |
| Barðastrandarsýsludeild | 4. mars kl. 18:00 | |
| Djúpavogsdeild | 17. feb kl. 20:00 | Löngubúð |
| Eyjafjarðardeild | 13. mars kl. 17:00 | Húsnæði deildar. |
| Fjarðabyggð | 13. mars kl. 18:00 | Múlinn - samvinnuhús, Neskaupsstað |
| Hornafjarðardeild | 10. mars kl. 18:00 | Ekran |
| Klausturdeild | 19. mars kl. 19:00 | Skaftársstofa |
| Múlasýsludeild | 24. feb kl. 20:00 | Húsnæði deildar |
| Skagafjarðardeild | 13. mars kl. 17:00 | Húsnæði deildar Aðalgötu 10b |
| Suðurnesjadeild | 12. mars | Húsnæði deildar |
| Þingeyjarsýsludeild | 25. feb kl. 18:00 | Naustinu |
| Vestmannaeyjadeild | 6. mars | Húsnæði deildar |
| Víkurdeild | 4. mars | Kjallarinn, Suður-Vík |
Á dagskrá aðalfunda deilda skal hið minnsta fjallað um eftirtalin atriði:
a. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b. Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári.
c. Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.
d. Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram.
e. Kosning formanns deildar.
f. Kosning deildarstjórnar og varamanna skv. 20. gr.
g. Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra.
h. Önnur mál.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Rauði krossinn fjölgar fatakössum á höfuðborgarsvæðinu
Almennar fréttir 18. nóvember 2025Nýjum söfnunarkössum Rauða krossins fyrir fatnað og annan textíl hefur verið komið fyrir við fimm Bónusverslanir á höfuðborgarsvæðinu. Samtals eru kassarnir því á sjö stöðum á svæðinu og stefnt er á frekari útbreiðslu á næstu misserum.
Samstaða sómalskra kvenna drifkraftur umbóta
Alþjóðastarf 06. nóvember 2025„Þrátt fyrir takmörkuð úrræði deila sómalskar konur þeirri öflugu hugsjón að konur séu konum bestar,“ segir Natalia Herrera Eslava, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi. Starf sómalska Rauða hálfmánans, sem Rauði krossinn á Íslandi styrkir, er mikilvægara nú en nokkru sinni.
Auglýsing um sögu Rauða krossins tilnefnd til verðlauna
Almennar fréttir 05. nóvember 2025„Saga Rauða krossins á Íslandi er löng og litrík og við lögðum mikla vinnu í að fanga rétta tilfinningu,“ segir hönnunarstjóri Strik Studio um tilnefningu til verðlauna á einni stærstu hönnunarhátíð Evrópu.